Landsnet óskar eftir tilboðum í endurnýjun öryggisgirðinga.
Verkið, TENGIVIRKIÐ VOGASKEIÐI – ENDURNÝJUN ÖRYGGISGIRÐINGA felur í sér:
- Niðurrif og förgun á um 149 m af núverandi öryggisgirðingu.
- Efnisútvegun og uppsetningu á nýrri girðingu, samtals 144 m.
- Efnisútvegun og uppsetningu á nýju aksturshliði.
- Efnisútvegun og hellulögn undir nýrri öryggisgirðingu, samtals 144 m.
Útboðsgögn afhent: | 10.02.2021 kl. 11:00 |
Skilafrestur | 01.03.2021 kl. 14:00 |
Nánari upplýsingar er að finna í verðfyrirspurnargögnum sem aðgengileg eru á útboðsvef Landsnets.