Home Fréttir Í fréttum Kaupa Esso-húsið á 1,2 milljarða króna

Kaupa Esso-húsið á 1,2 milljarða króna

236
0
Síðasta sumar var gerður tuttugu ára leigusamningur við Kvikmyndaskóla Íslands sem verður áfram í gildi. Mynd: VÍSIR/VILHELM

Félag hjónanna Birgis Bieltvedt fjárfestis og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur, Eyja fjarfestingarfélag, hefur keypt fasteignina við Suðurlandsbraut 18, Esso-húsið svokallaða, af fasteignaþróunarfélaginu Festi. Kaupverðið er 1,2 milljarðar króna.

<>

Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í morgun.

Þar segir að greitt sé fyrir fasteignina að stærstum hluta með peningum, en hluti með tveimur fasteignum – Lækjargötu 4 í Reykjavík þar sem veitingastaðurinn Jómfrúin er til húsa, og svo Lágmúla 7 þar sem er að finna vörugeymslu sem nú er leigð út til Sýnar og Nova.

Esso-húsið svokallaða er um 3.400 fermetrar að stærð, en Olíufélagið lét reisa það árið 1975.

Listaverk við Suðurlandsbraut 18.
Mynd: VÍSIR/VILHELM

Um tíma stóð til að opna hótel í húsinu en fallið var frá þeim áformum. Síðasta sumar var svo gerður tuttugu ára leigusamningur við Kvikmyndaskóla Íslands sem verður áfram í gildi samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins.

Heimild: Visir.is