Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir við Grindavík. Verkið felst í byggingu sjóvarna á tveimur stöðum við Grindavík, heildarlengd um 310 m.
Helstu magntölur:
- Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 2.700 m3
- Upptekt og endurröðun grjóts um 600 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 25. janúar 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. febrúar 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.