Fyrirtækið Bernódus ehf, sem er í eigu Bílddælingsins Jens Valdimarssonar hefur sótt um samþykki fyrir byggingaráformum fyrir 179 fermetra parhúsi við Arnarbakka 5 á Bíldudal og var umsóknin tekin til afgreiðslu í skipulags- og umhverfisráði Vesturbyggðar í síðustu viku.
Þá sótti Skemman Vatneyri ehf á Patreksfirði um leyfi fyrir byggingu tveggja parhúsa á Patreksfirði, við Bala 9 – 11 og Bala 13-15. Stjórnarformaður er Patreksfirðingurinn Erlendur Kristjánsson.
Allar umsóknirnar voru samþykktar með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar.
Heimild: BB.is