Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Útveggir viðbyggingar Hópsskóla í Grindarvík rísa

Útveggir viðbyggingar Hópsskóla í Grindarvík rísa

216
0
Mynd: Grindavik.is

Sem stendur er nú unnið að því að byggja áfanga 2 við Hópsskóla en um er að ræða 1.100 m² byggingu á einni hæð auk þess verður kjallari undir hluta byggingar.

<>

Það er Grindin ehf. sem sér um framkvæmdina.

Mynd: Grindavik.is

Í viðbyggingu verða m.a. fjórar heimastofur ásamt fjórum öðrum stofum fyrir textílmennt, myndmennt, heimilisfræði og smíði.

Viðbyggingin mun tengjast núverandi skóla að austanverðu og byggjast til suðurs, í átt að Hópinu. Gert er ráð fyrir að taka áfangann í notkun í byrjun árs 2022.

Grunnmynd viðbyggingar

Heimild: Grindavik.is