Sementsverksmiðjan harmar óþægindi sem nágrannar fyrirtækisins urðu fyrir í gær þegar sementsryk þyrlaðist upp frá sílói og lagðist yfir nágrenni verksmiðjunnar á Akranesi.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Gunnar H. Sigurðsson framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar sendi út. Þar biðst fyrirtækið afsökunar á óhappinu.
Þar segir að mannleg mistök hafi orðið til þess að sementssíló við Sementsverksmiðjuna yfirfylltist við uppskipun aðfaranótt 5. janúar svo sementsryk þyrlaðist upp og settist á götur, hús og bíla í nágrenni verksmiðjunnar.
Í tilkynningunni kemur fram að sement sem fyrirtækið flytur inn sé náttúrulegt efni, án eiturefna. Þó að rykið sem barst út í umhverfi verksmiðjunnar ógnaði ekki heilsu fólks.
Það getur þó, ef ekkert er að gert, valdið skemmdum á munum og byggingum.
„Starfsfólk Sementsverksmiðjunnar hefur frá því í gær unnið í samvinnu við íbúa, Slökkviliðið, Veitur og aðra aðila að því að hreinsa fljótt og vel upp vettvang og eignir fólks til að varna skemmdum og forða frekari óþægindum.
Sú vinna gekk vel og fyrirtækið vill koma á framfæri þökkum til allra sem að komu fyrir ötult starf og skjót viðbrögð.
Heimild: Mbl.is