Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit með gerð Bakkavegar á Húsavík, frá Húsavíkurhöfn að iðnaðarsvæði á Bakka.
Framkvæmdin sem hér um ræðir nær yfir gröft 0,9 km langra jarðganga og er breidd þeirra 11 m. Ennfremur smíði vegskála við gangaenda, klæðingu ganga, jarðvatnslagnir og rafbúnað ásamt vegagerð í göngum og vegagerð frá höfn að göngum og frá göngum að iðnaðarsvæði, samtals 2,1 km, ásamt brimvörn og lögn fráveitulagnar í göngin.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 17. ágúst 2015. Verð útboðsgagna er 10.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 6. október 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.
Síðari opnunarfundur verður á sömu stöðum þriðjudaginn 13. október 2015 klukkan 14:15 þar sem lesin verður upp stigagjöf bjóðenda í hæfnismati og verðtilboð hæfra bjóðenda opnuð.
Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.