Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í yfirborðsmerkingar á götum og stígum í bæjarfélaginu til næstu þriggja ára, 2021-2023.
Helstu magntölur fyrir hvert ár samningstímans eru:
- Mössun, línur: 29.000 m
- Mössun, fletir: 3.400 m2
- Mössun, stakar merkingar: 1.800 stk.
- Málun, línur: 4.000 m
- Málun, fletir: 500 m2
- Málun, stakar merkingar: 50 stk.
Útboðsgögn verða afhent með tölvupóst frá og með 4. janúar 2021. Beiðni um útboðsgögn skal senda á tölvupóstfangið utbod@kopavogur.is. Í tölvupósti skal koma fram nafn tengiliðs vegna útboðsins, tölvupóstfang, símanúmer og nafn fyrirtækis.
Tilboði skal skila undirskrifuðu á utbod@kopavogur.is fyrir kl. 11:00, 9. febrúar 2021.
Ekki verður boðið upp á að opna tilboðin að viðstöddum bjóðendum en niðurstöður útboðsins verða sendar á alla bjóðendur að opnuninni lokinni.