Vegagerðin auglýsir drög að tillögu að matsáætlun vegna færslu Hringvegar (1) um Mýrdal. Árið 2013 var Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028 samþykkt með nýrri veglínu Hringvegar um Mýrdal, í jarðgöng sunnarlega í Reynisfjalli og sunnan við byggðina í Vík.
Samgönguáætlun 2020-2024 gerir ráð fyrir fjármagni í undirbúning þessarar nýju veglínu. Vegagerðin vinnur því að forhönnun og undirbúningi á mati á umhverfisáhrifum vegna færslu Hringvegarins.
Í drögum að matsáætlun er m.a. gerð grein fyrir eftirfarandi:
- Valkostagreiningu.
- Helstu áhrifaþáttum framkvæmdarinnar.
- Hvernig staðið verði að mati á umhverfisáhrifum.
- Fyrirkomulagi kynninga og samráðs.
- Framsetning gagna í frummatsskýrslu.
Opnuð hefur verið vefsjá (vik-hringvegur.netlify.app) þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar sem tengjast matinu og koma á framfæri ábendingum og athugasemdum.
Einnig má senda skriflegar athugasemdir eða ábendingar um drög að tillögu að matsáætlun á netfangið erla@vso.is eða VSÓ Ráðgjöf (b.t. Erla Björg Aðalsteinsdóttir), Borgartúni 20, 105 Reykjavík.
Frestur til að senda inn ábendingar er til og með 1. febrúar n.k.
Heimild: Vegagerðin