Leigufélagið Bríet óskar eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða víðsvegar um landið.
Leigufélagið Bríet stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum og auglýsir því eftir byggingaraðilum til samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti.
Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á soffia@briet.is og skal gögnum skilað fyrir mánudaginn 21. desember 2020.
Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæða lausna.
Smelltu hér til að skoða auglýsingu eftir byggingaraðilum í Vesturbyggð
Smelltu hér til að skoða auglýsingu eftir byggingaraðilum í Múlaþingi
Smelltu hér til að skoða auglýsingu eftir byggingaraðilum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Smelltu hér til að skoða auglýsingu eftir byggingaraðilum í Dalabyggð
Nánari upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson (elmar.erlendsson@hms.is).