Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið:
Göngu- og hjólastígur meðfram Vatnsleysustrandarvegi
Verk þetta felst í gerð malbikaðs göngu- og hjólastígs sem byrjar við gatnamót á Vogavegi í Vogum og liggur svo meðfram Vatnsleysustrandarvegi.
Heildarlengd stígs er um 2470 m. Er verkinu nánar lýst á uppdráttum, verklýsingu og magnskrá.
Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt 4200 m3
Fyllingar 5600 m3
Malbik 6375 m2
Verklok skulu vera eigi síðar en 21. maí 2021.
Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is eða hringja í síma 440 6200 og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti.
Útboðsgögn verða afhent frá og með föstudeginum 27. nóvember 2020.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en föstudaginn 11. desember 2020, kl. 10:30. Opnun tilboða fer fram á fjarfundi með „Teams“, fundarkerfi 11. desember 2020, kl. 11:00.
Þeir bjóðendur sem vilja tengjast opnunarfundinum skulu senda beiðni um það á netfangið skrifstofa@vogar.is og verður þeim þá sendur hlekkur til að tengjast fundinum.