Home Fréttir Í fréttum Þriðji grunnskólinn byggður á Selfossi

Þriðji grunnskólinn byggður á Selfossi

275
0
Fyrstu skóflustungurnar voru teknar á föstudaginn af Stekkjaskóla á Selfossi að viðstöddum hönnuðum og forsvarsmönnum sveitarfélagsins og nýja skólans. Mynd: MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Framkvæmdir eru hafnar við byggingu þriðja grunnskólans á Selfossi, sem verður fyrir fimm hundruð nemendur, auk þess að vera tónlistarskóli og leikskóli.

<>

Fyrsti áfangi skólans, sem kostar um tvo milljarða króna verður tekin í notkun næsta haust.

Fyrstu skóflustungurnar af nýja skólanum, sem mun heita Stekkjaskóli voru teknar á föstudaginn. Skólinn tekur til starfa næsta haust með um 150 nemendum í 1. – 4. bekk. Arna Ír Gunnardóttir er formaður byggingarnefndar skólans.

„Þetta verður stór skóli þegar hann verður fullbyggður en hann verður auðvitað byggður í áföngum. Það er mikil þörf á nýjum grunnskóla á Selfossi því hér hefur byggst gríðarlega hratt upp, það flytur hingað mikið af fjölskyldum með mörg börn og hér er mjög hátt hlutfall íbúa á grunnskólaaldri og skólarnir okkar hér á Selfossi eru orðnir yfirfullir. Það er algjörlega tímabært að við förum í þessa framkvæmd,“ segir Arna Ír.

Hilmar Björgvinsson hefur verið ráðinn skólastjóri nýja skólans. Hann segir að í Stekkjaskóla verði lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, fjölbreytta kennsluhætti og jákvæðan skólabrag.

Kennsla í nýja skólanum hefst næsta haust.

„Já, það á að byrja að kenna í skólanum í haust, allur undirbúningur miðar að því. Skólinn verður byggður í áföngum en kostnaðurinn við fyrsta áfangann verður rúmir tveir milljarðar og síðan verður framhaldið tekið eftir efni og aðstæðum, framhaldið,“ bætir Arna Ír við.

Heimild: Visir.is