Akraneskaupstaður og Hestamannafélagið Dreyri hafa hafið vinnu við byggingu á 1250m² Reiðhallar við Æðarodda.
Vinna er hafin við jarðvegsskipti og stefnt á að koma fyrir forsteyptum sökklum í nóvember.
Í framhaldi er byggingin reyst úr límtrésbitum og klædd með yleiningum.
Hönnuður hússins er Hallur Kristmundsson hjá Arkþing.
Heimild: Akranes.is