Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Samið við Alverk ehf. vegna byggingu svefnskála við Þjóðbraut á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar

Samið við Alverk ehf. vegna byggingu svefnskála við Þjóðbraut á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar

425
0
Mynd: Vf.is

Bygging svefnskála á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar.

<>

Áframhaldandi uppbygging svefnaðstöðu á öryggissvæði Keflavíkurflugvalllar. Landhelgisgæslan annast daglegan rekstur öryggissvæðanna í umboði utanríkisráðuneytis.

Verkefnið felst í byggingu tveggja svefnskála með samtals 50 svefnplássum ásamt stoðrýmum.

Skálarnir verða staðsettir samkvæmt deiliskipulagsskilmálum fyrir reiti nr. 9 og 11 við Þjóðbraut á Keflavíkurflugvelli.

Svefnskálarnir verða í daglegum rekstri Landhelgisgæslunnar.

Svefnskálarnir eru ætlaðir erlendum liðsafla sem dvelur tímabundið á Íslandi. Þeir eru brýn viðbót við skála sem þegar eru á öryggissvæðinu.

Til stendur að fjölga svefnplássum í 300 talsins fram til ársins 2024.

Alútboð vegna svefnskálanna var auglýst í maí 2020. Alútboðsgögn voru afhent 3. júní, en skilafrestur tilboða rann út 18. september.

Fjórir verktakar voru valdir til þátttöku í alútboðinu og bárust tilboð frá þeim öllum, það lægsta frá Alverki ehf.

Var tilboði fyrirtækisins tekið og samningur þar að lútandi undirritaður í október 2020.

Áætlað er að svefnskálarnir verði teknir í notkun í desember 2021.

Heimild: Fsr.is