Í byrjun árs var kynnt í framkvæmda- og hafnarráði Vestmannaeyjabæjar endurhönnun Vigtartorgsins við smábátahöfnina.
Nú eru hafnar framkvæmdir við torgið.
Fram kom í fundargerð ráðsins þá að ljóst sé að verkið sé umfangsmikið og því nauðsynlegt að áfangaskipta því.
Ráðið samþykkti að hefja framkvæmdir í samræmi við fjárhagsáætlun.
Meðal þess sem lagt var til að yrði á torginu er yfirbyggt útisvið, legubekki, fjölbreytt leiktæki, sögutorg, hengirúm, setbrekka og sölubásar.
Heildarkostnaður gæti verið um 100 milljónir
Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar segir í samtali við Eyjar.net að nú sé verið að hlaða grjótveggi sem afmarka svæðið og vinna aðra jarðvinnu eftir föngum.
Hann segir að á þessu ári hafi verið gert ráð fyrir 30 milljónum í verkið.
„Grunnhugmynd af svæðinu var útfærð af Pétri Jónssyni arkitekt frá Laufási en gert er ráð fyrir að vinna verkið á 3 árum.
Endanlegar útfærslur á leiktækjum o.s.frv. eru ennþá í vinnslu þannig að óvarlegt er að fullyrða um kostnað en heildarkostnaður gæti verið um 100 milljónir.” segir Ólafur Þór.
Hér að neðan má sjá tillöguna sem að kynnt var í byrjun árs.
Heimild: Eyjar.net