Hafnasjóður Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í byggingu grjótgarðs og lagningu útrásar. Verkið felst í fyllingu undir og gerð grjótgarðs, vegna landfyllingar austan við núverandi höfn í Bíldudal.
Verkið felst einnig í lagningu nýrrar útrásar fyrir fráveitu og tengingu inn á núverandi fráveitulögn ásamt útrásarbrunni.
Helstu magntölur:
· Fylling undir grjótgarð 15.000 m³.
· Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 14.500 m3.
· Endurnýting grjóts 4.500 m³
· Lagning um 180 m útrásar, í gegnum garð og svo með steyptum sökkum
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. apríl 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 19. október 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00, þriðjudaginn 3. nóvember 2020.
Sérstakur opnunarfundur verður ekki haldinn, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildar tilboðsupphæð.