Landsnet óskar eftir tilboðum í byggingu strengja- og útivistarbrúar yfir Glerá á Akureyri.
Verkið felur í sér smíði stálbogabrúar sem er í einu 35 m löngu hafi. Lengd brúar með stöplum er um 45 m.
Í brúargólfinu eru ídráttarrör fyrir háspennustrengi RARIK og strengir Landsnets eru í upphengdum rörum undir brúargólfi. Brúin verður einnig nýtt sem útivistarbrú.
Í verkinu felst einnig gerð reiðstíga að brúnni beggja vegna gils.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum HS3-26 sem aðgengileg eru á útboðsvef Landsnets, utbod.landsnet.is.
Helstu verkþættir eru:
Aðstöðusköpun
Reiðstígur
Ídráttarrör
Handrið
Bergskeringar
Steypumót
Steypa, staðsteypa
Forsteyptar einingar í brúargólf
Stálvirki
Frágangur í verklok
Opnun tilboða verður þann: 01.12.2020 kl. 14:00
Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvef Landsnets, utbod.landsnet.is.