Mikil umræða hefur verið um öryggi vega hér á landi eftir banaslysið sem átti sér stað á Kjalarnesi í sumar. Forstjóri Vegagerðarinnar segir að markmiðið með umbótavinnu sé að koma í veg fyrir að slíkt slys eigi sér stað aftur.
Starfsmenn Vegagerðarinnar segjast vera harmi slegnir yfir banaslysi sem átti sér stað á Kjalarnesi í júní. Nú sé unnið að umfangsmikilli endurskoðun á öllum ferlum sem lúti að yfirlögnum á vegum til að reyna að tryggja að slíkt slys eigi sér ekki stað aftur.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar, en stjórnendur þar hafa sætt gagnrýni vegna slyssins.
Tveir bifhjólamenn létust í slysinu sem talið er að rekja megi til galla í malbiki sem var nýbúið að leggja á umræddan vegarkafla og gerði það að verkum að hann var mjög háll.
Lýstu yfir fullkomnu vantrausti
Bifhjólasamtökin Sniglar lýstu yfir fullkomnu vantrausti á hendur Vegagerðinni og forstjóra hennar fyrir helgi í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringarþáttarins Kveiks. Var þar fjallað var um aðdraganda slyssins og annmarka á framkvæmdum í vegakerfinu. Fullyrtu sérfræðingar að malbik og klæðningar á vegum hafi ítrekað skapað hættu fyrir ökumenn.
Beindist vantraustsyfirlýsing Sniglanna meðal annars að því að ekki hafi verið gripið inn í þegar kvartað var undan sleipu malbiki á slysstað daginn áður en það átti sér stað.
Hefði ekki átt að fara framhjá reynslumiklum aðilum
Heiðrún Finnsdóttir, dóttir Finns Einarssonar sem lést í slysinu ásamt konu sinni, Jóhönnu Sigríði Sigurðardóttur, sagði í Kastljósi í gær að faðir hennar hafi haft miklar áhyggjur af lélegu malbiki á vegum landsins.
Þá lýsti Heiðrún óánægju sinni með frágang Vegagerðarinnar og verktaka í sumar.
„Það ætti öllum að vera ljóst að þarna er stórhættulegt malbik á ferðinni því það er spegilslétt. Bílarnir sem stoppuðu í stutta stund tóku tjöruna með sér þegar þeir fóru af stað. Þetta átti ekkert að fara fram hjá svona reynsluboltum,“ sagði hún í Kastljósi.
Augljóst samhengi milli galla og aðstæðna á slysstað
Í áðurnefndri yfirlýsingu Bergþóru segir að rannsóknir á viðnámi vegarins eftir slysið hafi sýnt að verkið hafi ekki uppfyllt kröfur í útboðslýsingu og að umrætt malbik hafi ekki staðist útboðskröfur.
„Augljóst samhengi er milli þeirra galla og þeirra aðstæðna sem sköpuðust á slysstað.“
Þá segir forstjórinn að verkið sem um ræðir hafi verið framkvæmt af verktaka með mikla reynslu.
„Sú reynsla kom því miður ekki í veg fyrir þær afleiðingar sem við öll þekkjum.“
Heimild: Frettabladid.is