7.8.2015
Hafnasjóður Norðurþings óskar eftir tilboðum í dýpkun Húsvíkurhafnar. Um er að ræða stofndýpkun að mestu leyti, innan hafnar og í innsiglingu.
Helstu magntölur:
Dýpkun á lausu og föstu efni 74.100 m³
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 10. ágúst 2015. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. ágúst 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.