Alls hafa fimm hópar lagt inn umsókn um hönnun og byggingu bílastæða- og tæknihúss Nýja Landspítalans.
Fimm hópar skiluðu inn umsóknum vegna forvalsins vegna útboði á fullnaðarhönnun og byggingu bílastæða- og tæknihúss Nýja Landspítalans.
Opnað var fyrir umsóknir þann 6. október síðastliðinn.
Bílastæðahluti hússins er um 16.900 m² eða 540-570 bílastæði. Tæknirými meðal annars vegna varaaflskerfa er um 2.300 m² og geymslur 500 m².
Nýr Landspítali ohf. stefnir að útboði hússins innan nokkurra mánaða og að jarðvinna geti hafist á árinu 2021.
„Forvalsnefnd Nýs Landspítala ohf. mun skila niðurstöðum 21. október um hæfis- og hæfnismat, en heimilt er skv. forvalsgögnum að heimila allt að fimm þátttakendum boð í útboðinu,“ kemur fram í tilkynningunni.
Eftirfarandi aðilar skiluðu inn umsókn.
- Ístak með Arkþing Nordic og Eflu.
- ÍAV með Batterínu og Verkís.
- Eykt með Tark og VSÓ.
- ÞG verktakar með Arkís, Mannvit.
- Rizzani de Eccher með Þingvang, Urban arkitektum, Wim de Bruijn, Brekke & Strand, Verkfræðistofu Reykjavíkur og Örugg verkfræðistofu.
Heimild: Vb.is