Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Kraftur í framkvæmdum við nýja hitaveitu á Höfn

Kraftur í framkvæmdum við nýja hitaveitu á Höfn

261
0
Loftmynd frá Hoffelli sem sýnir tank veitunnar efst til vinstri, dælustöð hægra megin og borholuhús neðst til hægri. Mynd: Rarik

Framkvæmdum við nýja hitaveitu á Höfn hefur miðað vel í sumar. Unnið hefur verið af krafti við lagningu 20 km. stofnlagnar frá Hoffelli til Hafnar samhliða byggingu dælustöðva.

<>

Framkvæmdum við jöfnunartank veitunnar er nú lokið og verið er að reisa borholuhús og klára frágang dælustöðva í Hoffelli og á Stapa.

Þá hefur verið unnið að breytingum á kyndistöð RARIK svo hún geti þjónað nýju hlutverki í dreifikerfi nýrrar hitaveitu.

Hús Kyndistöðvarinnar hefur nýst vel í áranna rás og verið lagað að aðstæðum og starfseminni á hverjum tíma, fyrst sem diesel rafstöð, svo einnig sem kyndistöð og loks bættist við hlutverk aðveitustöðvar.

Jöfnunartankur hitaveitunnar. Mynd: Rarik

Í dag standa eftir nokkrir metrar af lögnum og tveir lokar af upphaflegum búnaði diesel rafstöðvarinnar, öllu öðru hefur verið skipt út.

Gert er ráð fyrir að kyndistöðin verði áfram í húsinu á meðan reynsla er að koma að rekstur hitaveitunnar, en til framtíðar er gert ráð fyrir að þar gæti verið varmadæla til að nýta varmann út bakvatninu, ef þörf verður á að spara vatnsupptöku úr jarðhitakerfinu við Hoffell.

Unnið að byggingu dæluhússins. Mynd: Rarik

RARIK stefnir að því að tengja nýju stofnlögnina við dreifikerfi veitunnar á Höfn síðar í haust, en þá munu allir sem nú eru tengdir fjarvarmaveitunni tengjast borholusvæðinu við Hoffell og á sama tíma munu nýir notendur í Nesjum, þar á meðal í Nesjahverfi, tengjast veitunni. Fyrst um sinn munu þannig um 2/3 hlutar húsa á Höfn sem í dag tengjast fjarvarmaveitu RARIK tengjast hitaveitunni.

Unnið að byggingu borholuhúss sem eru hannað sérstaklega með hjóðvist í huga. Mynd: Rarik

Næsta vetur verður haldið áfram að tengja einstaka fasteignir sem liggja við núverandi dreifikerfi veitunnar.

RARIK mun fljótlega bjóða út lagningu nýrra stofnlagna dreifikerfisins í Vesturbraut og Silfurbraut og er áætlað að framkvæmdir við þær geti hafist snemma næsta vor. Nýir notendur við þessar götur munu í framhaldinu tengjast dreifikerfi veitunnar.

Heimild: Rarik.is