Verkfræðistofan Verkís hefur birt tölvumynd af nýrri brú sem smíðuð verður yfir Jökulsá á Sólheimasandi.
Eins og fram kom í frétt hér í blaðinu á fimmtudaginn hefur Vegagerðin óskað eftir tilboðum í smíði brúarinnar og verða tilboð opnuð þriðjudaginn 27. október nk.
Samkvæmt útboðslýsingu verður heildarlengd vegkafla á hringvegi um einn kílómetri.
Nýja brúin, sem Verkís hannar, verður eftirspennt bitabrú í fimm höfum, alls 163 metrar.
Hún verður reist á sama stað og sú gamla, sem verður rifin. Bráðabirgðabrú verður gerð sem vinnuflokkur Vegagerðarinnar smíðar.
Gamla brúin á Jökulsá austan Skóga er eina einbreiða brúin á leiðinni frá Reykjavík og austur að Kirkjubæjarklaustri.
Hún var byggð árið 1967. Við brúna hafa oft myndast langar bílaraðir þegar umferð er mest á sumrin.
Heimild: Mbl.is