Home Fréttir Í fréttum 15.10.2020 Akureyrarbær. Endurbætur á A álmu og tengigangi í Lundarskóla á Akureyri

15.10.2020 Akureyrarbær. Endurbætur á A álmu og tengigangi í Lundarskóla á Akureyri

254
0
Lundarskóli Akureyri

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í endurbætur á A álmu og tengigangi í Lundarskóla á Akureyri auk nýbyggingar í inngarði samkvæmt útboðsgögnum.

<>

Um er að ræða um 2.000 m² í endurbótum og viðbyggingu um 30 m².
Framkvæmdatíminn er frá lok október 2020 til 15. maí 2021.

Útboðsgögn verða send á rafrænu formi til þeirra sem þess óska, frá og með 23. september 2020. Vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið umsarekstur@akureyri.is og óskið eftir gögnum.

Tilboðum skal skila rafrænt á sama netfang eða í merktu umslagi til umhverfis- og mannvirkjasviðs Geislagötu 9, 600 Akureyri fyrir kl. 11.00 fimmtudaginn 15. október 2020 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.