Lenging brimvarnargarðsins í Ólafsvík um áttatíu metra, eða eina Hallgrímskirkju og sex metrum betur, verður til þess að auka öryggi við innsiglingu og verja höfnina fyrir veðrum og vindum. Verkið hófst í vor.
„Það gengur alveg ágætlega, það gekk aðeins hægt í vor bara út af veðri og svo var svona ýmislegt en það hefur gengið mjög vel núna í sumar.
Þetta er rosalega mikil vinna og tekur alltaf marga mánuði að byggja einn svona garð, en þetta er á fínu róli núna og vonandi bara fer síðasti steinninn í lok október,“ segir Björn Arnaldsson, hafnarstjóri í Snæfellsbæ.
Þau eru allt að tólf tonn að þyngd, björgin sem nýtast til verksins, og hagleik þarf til að raða þeim rétt.
„þetta eru 40 til 50 þúsund rúmmetrar sem fara í garðinn og við erum bara svona heppnir hérna að við höfum mjög góða grjótnámu fyrir ofan Rif svo það er tiltölulega stutt að ná í efnið sem skiptir máli þegar kostnaðurinn er heilmikill við svona framkvæmd.“
Heildarkostnaðurinn er um 170 milljónir. Einnig á að dæla upp sandi til þess að dýpka botninn við höfnina í Ólafsvík og Rifi sem kostar 130 til 140 milljónir til viðbótar.
„Þannig við ætlum að dæla því öllu og ná sex og hálfs metra dýpi eins og á að vera.“
Heimild: Ruv.is