Home Fréttir Í fréttum Elsta brú landsins verður ný göngubrú í Hrútey

Elsta brú landsins verður ný göngubrú í Hrútey

336
0
Búin þar sem hún er í geymslu í dag, nýhreinsuð og máluð. Mynd: Stoð ehf.

Nýja brúin í Hrútey er gamla Blöndubrúin sem var vígð 1897. Hún var flutt í Svartárdal og brúaði þar Svartá við Steinárbæina og stóð þar í tæp 40 ár.

<>

Brúin var nú aftur flutt heim á Blönduós og hefur fengið yfirhalningu og nýtt hlutverk.

Elsta brú landsins hefur fengið yfirhalningu og mun þjóna nýjum tilgangi sem göngubrú yfir í Hrútey.

Gamla Blöndubrúin var vígð árið 1897 og gegndi veigamiklu hlutverki á sínum tíma og var mikil samgöngubót fyrir Blönduós og Austur-Húnavatnssýslu.

Hún stóð á sama stað til ársins 1962 þegar hún var flutt fram í Svartárdal og brúaði þar Svartá við Steinarbæina. Mjólkur- og olíuflutningabílar fluttu birgðir sínar yfir brúna í tæp 40 ár þar til hún þjónaði ekki lengur hlutverki sínu.

Þá voru bílar orðnir of breiðir og þurftu að fara yfir Svartá á vaði til að sækja mjólkina á Steinárbæjunum.

Ákveðið var að varðveita brúna og finna henni nýtt hlutverk vegna merku sögu hennar. Stálgrindin er í góðu lagi og verður komið fyrir á undirstöðunum en nýtt brúargólf verður smíðað úr timbri og komið fyrir handriði á henni.

Núverandi brú í Hrútey verður fjarlægð. Mynd úr safni

Skipulags- umhverfis- og umferðarnefnd Blönduósvæjar samþykkti byggingar- og framkvæmdaleyfi við uppsteypun á undirstöðum fyrir brúna.

Skipulagsfulltrúa hefur verið falið að gefa út framkvæmdarleyfi og verkfræðistofan Stoð ehf., með Atla Gunnari Arnórssyni í fararbroddi, tekur að sér verkefnið að hanna og reisa nýju brúna.

Teikning af fyrirhugaðri staðsetningu brúarinnar. Mynd: Stoð ehf.

Heimild: Frettabladid.is