Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í að byggja anddyri, búningsklefa og tilheyrandi tengibyggingu við núverandi sundlaugarbyggingu og íþróttahús á Siglufirði, samtals 292,3 m2 á tveimur hæðum. Innifalið í verkinu er rif á tengigangi og breytingar á núverandi húsnæði samtals um 110 m² skv. teikningum AVH dags. í júlí 2020.
Verktími er frá 1. nóv. 2020 til 28.febrúar 2022.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 1.200m3
Steypumót 1.400m²
Steypustyrktarstál 10.000 kg
Steinsteypa 190m3
Kerfisloft 310m²
Málun 600m²
Flísalögn samtals 810m²
Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið avh@avh.is og verða þau afhent frá og með 29. september nk.
Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið avh@avh.is fyrir kl. 13:00 þriðjudaginn 20. október og verða tilboðin opnuð kl. 13:30 sama dag í ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með opnun tilboða á fjarfundi óski þeir þess.