Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, kynnir opið útboð á framkvæmdum við jarðvinnu og að girða af verksvæði fyrir fyrirhugað hús Gestastofu Vatnajökulsþjóðarðs Kirkjubæjarklaustri. Verkið er undirbúningsframkvæmd vegna byggingar nýrrar Gestastofu fyrir Vatnajökulsþjóðgarð á Kirkjubæjarklaustri. Um er að ræða gröft fyrir húsi, stígum, þróm og fyllingu undir sökkla húss.
Helstu magntölur eru:
Girðingar 450 m
Gröftur 14.100 m3
Fyllingar 4.200 m3
Landmótun með uppgröfnu efni 8.000 m3
Stærð lóðar er u.þ.b. 63.235 m2 og stærð fyrirhugaðs húss er u.þ.b. 765 m2.
Byggingarreiturinn er á lóð í landi Hæðargarðs við Sönghól sem liggur meðfram þjóðvegi 1 rétt áður en komið er að Kirkjubæjarklaustri, sunnan við Skaftá. Lóðin er í u.þ.b. tveggja kílómetra fjarlægð frá Kirkjubæjarklaustri.
Reiknað er með því að verkið geti hafist í byrjun október 2020 og verði lokið í byrjun desember.
Nánari upplýsingar varðandi umbang útboðsins er að finna í útboðskerfi Ríkiskaupa Tendsign.
Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið er að finna á heimasíðu Ríkiskaupa.