Hafnarstjórn Langaneshafna óskar eftir tilboðum í endurbyggingu brimvarnar á Bakkafirði.
Endurbyggja og styrkja skal grjótkápu brimvarnar sem umlykur smábátahöfnina á Bakkafirði.
Verkið felst í vinnslu grjóts í grjótnámu á Kolbeinstanga við Vopnafjörð, flutning efnis að garðstæði og endurbyggingu grjótkápu brimvarnar.
Helstu magntölur:
Vinnsla grjóts í námu og útlögn 3.066 m³.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. maí 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 21. september 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 6. októberr 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.