Home Fréttir Í fréttum Vegagerðin og ÍAV hf. skrifa undir samning um Dynjandisheiði

Vegagerðin og ÍAV hf. skrifa undir samning um Dynjandisheiði

502
0
Forstjórar Bergþóra Þorkelsdóttir og Sigurður Ragnarsson skrifa undir verksaming. Mynd: Vegagerðin

Vinna við lagningu 1. áfanga Dynjandisheiðar hefst á næstu dögum en forstjórar Vegagerðarinnar og ÍAV hf. skrifuðu undir verksamning í dag.

<>

Byrjað verður á verkinu við Þverdalsá sem rennur í Pennu og mun verktakinn koma sér fyrir og hefja vinnu við sprengingar um mánaðamótin september og október.

Um er að ræða verkið Vestfjarðavegur (60) um Dynjandisheiði, 1. áfangi og felst það í nýbyggingu Vestfjarðarvegar á um 10 km kafla.

Verkið skiptist í tvo kafla.

Annars vegar um 5,7 km langan kafla við Þverdalsá (vegkafli 60-35) og hins vegar um 4,3 km langan kafla fyrir Meðalnes (vegkafli 60-38).

Vegurinn við Þverdalsá er að mestu leyti byggður í nýju vegstæði en að hluta til í núverandi vegstæði og liggur svo niður Penningsdalinn.

Forstjórar Bergþóra Þorkelsdóttir og Sigurður Ragnarsson handsala verksaming. Mynd: Vegagerðin

Vegurinn fyrir Meðalnes er alfarið byggður í nýju vegstæði. Þverdalsáin rennur í Vatnsfjörð í Pennudal – ofan við Flókalund en Meðalnesið er innst í Arnarfirði þar sem er Borgarfjörður og kaflinn byrjar nálægt Mjólkárvirkjun.

Við undirskrift samningsins sagði Sigurður Ragnarsson forstjóri ÍAV hf. að honum litist mjög vel á þetta verk og þar sem hann hefði nýverið ekið þessa leið myndi hann fagna því að geta í framtíðinni ekið þar um á hreinum bíl.

Auk forstjóranna Bergþóru Þorkelsdóttur og Sigurðar Ragnarssonar má sjá á myndinni þá Hauk Magnússon og Einar Hrafn Hjálmarsson frá ÍAV og Gunnar Sigurgeirsson og Sigurþór Guðmundsson frá Vegagerðinni.

Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar sagði að ánægjulegt væri að hægt væri að fara í vegalagningu um Dynjandisheiði um leið lokið væri við gerð Dýrafjarðarganga en á tímabili var þessi vegagerð ekki áætluð fyrr en nokkuð seinna.

Það mun því fela í sér að fjárfestingin í göngunum mun nýtast betur mun fyrr en ella.

Unnið verður við verkið í allan vetur ef aðstæður leyfa en samkvæmt verkáætlun á útlögn efra lags klæðingar að vera lokið 31. ágúst 2021.

Verkinu skal síðan að fullu vera lokið 30. september 2021.

Heimild: Vegagerðin.is