Umhverfissvið Mosfellsbæjar og Vegagerðin óska eftir tilboðum í verkið: Samgöngustígur og endurnýjun Varmárræsis í Ævintýragarði
Verkið felst í að leggja tæplega 1.700 m langan og 5 m breiðan samgöngustíg í gegnum Ævintýragarðinn í Mosfellsbæ, þar með talið niðursetning tveggja brúa, yfir Varmá annars vegar og Köldukvísl hins vegar.
Einnig er um að ræða endurnýjun á Ø600 skólplögn (Varmárræsi) á um 220 m kafla vestan Varmár.
Að auki þarf að endurgera reiðstíg sem grefst í sundur vegna framkvæmdanna.
Helstu verkþættir í verki, sem þetta útboð nær til, eru eftirfarandi:
Jarðvinna fyrir stíg og veitulagnir
Skólplögn Ø600
Malbikaður stígur (5 m breiður), lengd ~1.700 m
Koma fyrir 2 brúm (Á Varmá og Köldukvísl)
Yfirborðsfrágangur
Helstu magntölur eru:
Upprif á malbiki 3.700 m²
Gröftur fyrir stígum og undirstöðu brúa 7.300 m3
Fyllingar með aðkeyrðri grús 8.600 m3
Grjóthleðsla og grjót í yfirborði 160 m²
Mulningur 11.000 m²
Steypumót – undirstöður fyrir brýr 290 m²
Bendistál – undirstöður fyrir brýr 7.000 kg
Steinsteypa – undirstöður fyrir brýr 60 m3
Malbikun 8.600 m²
Hellulögn 330 m²
Umferðarkantsteinn 370 m
Sáning 10.000 m²
Þökulögn 4.600 m²
Umferðarmerki 69 stk
Yfirborðsmerkingar 2.400 m
Endurgerð reiðstígar 720 m²
Gröftur fyrir fráveitu og ræsum 2.600 m3
Söndun fyrir fráveitu og ræsum 330 m3
Losun á klöpp í skurðum 600 m3
Skólplagnir (Ø600) 220 m
Götuljósastrengir (í skurði og ídráttarrör) 2.700 m
Ljósastólpar 58 stk.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að áfangaskipta verkinu í tvo hluta og magntölur geta því tekið breytingum til samræmis við fjárveitingu sem samþykkt hefur verið til verksins í fjárhagsáætlun hvers árs.
Verkinu skal að fullu lokið 14. ágúst 2021.
Í ljósi samkomutakmarkarkana verða útboðsgögn afhent rafrænt til þeirra sem þess óska í netfangið mos@mos.is, Þjónustuver Mosfellsbæjar, frá og með klukkan 11:00 á þriðjudeginum 15. september 2020.
Tilboðum skal skilað með sama hætti, á netfangið mos@mos.is, eigi síðar en fimmtudaginn 8. október 2020 kl.11:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska á rafrænum opnunarfjarfundi.