Verulega hefur hægt á íbúðafjárfestingu hér á landi samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.
Íbúðafjárfesting dróst saman um 21% milli ára á öðrum ársfjórðungi þessa árs sem er mesti samdráttur sem hefur mælst síðan á öðrum ársfjórðungi ársins 2010.
Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans.
Þar kemur jafnframt fram að þetta er annar ársfjórðungurinn í röð sem samdráttur mælist, en á fyrsta ársfjórðungi dróst íbúðafjárfesting saman um 5%.
Þrátt fyrir þetta er uppbygging enn þá mikil og má áfram gera ráð fyrir fjölgun íbúða inn á markaðinn næstu misseri þar sem tíma tekur að klára mörg þeirra verkefna sem þegar voru hafin.
Alls var fjárfest fyrir ríflega 35 milljarða króna á öðrum fjórðungi þessa árs.
Ef frá er talið tímabilið frá fyrsta ársfjórðungi 2019 til fyrsta ársfjórðungs 2020 er þetta mesta fjárfesting sem hefur átt sér stað á stökum ársfjórðungi síðan 2008.
„Við sjáum því að þó svo að það hægi á íbúðafjárfestingu er engu að síður talsvert í byggingu.
Það má því segja að við séum að ganga í gegnum uppbyggingarskeið sem er ekki ósvipað því sem átti sér stað á árunum 2006-2008 þegar að jafnaði var fjárfest fyrir tæplega 40 ma. kr. á hverjum ársfjórðungi, á verðlagi ársins 2019,“ segir í Hagsjánni.
Í nýbirtum tölum Hagstofunnar kemur í ljós að hafin var bygging á um 3.800 íbúðum í fyrra.
Það mun vera mesti fjöldi á einu ári síðan 2007. Um síðustu áramót voru tæplega 5.300 íbúðir í byggingu og hefur sá fjöldi ekki verið meiri síðan í árslok 2009.
Í Hagsjánni er rakið að hagvísar bendi til að hægja fari á uppbyggingu. „Við sjáum það greinilega þegar rýnt er í gögn um seldar nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu.
Þær voru 15% fleiri á öðrum ársfjórðungi í ár samanborið við sama tímabil í fyrra. Aukið framboð kann að hafa ýtt undir verðlækkanir í einstaka tilfellum, og þar með aukið á vinsældir nýbygginga.
Mest lækkaði verð á seldum nýbyggingum í miðbæ Reykjavíkur, um 7% milli ára, og þar var einnig mesta aukningin í sölu milli ára.
Hversu margar nýjar íbúðir standa þó óseldar er óljóst sem stendur, en í vor, þegar síðasta talning Samtaka iðnaðarins fór fram, kom í ljós að óseldum nýjum íbúðum hafði fjölgað nokkuð sem gefur til kynna að markaðurinn sé að mettast.“
Heimild: Mbl.is