„Þetta er myndarlegt hús og ég held að það verði mjög skemmtilegt þegar endurbótum er lokið,“ segir Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu.
Friðbert er eigandi hússins á Víðimel 29 sem um árabil var í eigu kínverska sendiráðsins og þykir ein af fallegri byggingum í Vesturbæ Reykjavíkur.
Það hefur staðið autt um hríð en nú á að gera bragarbót á.
Friðbert hefur sótt um leyfi hjá skipulagsyfirvöldum í Reykjavík til að breyta eigninni í fimm sjálfstæðar íbúðir, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Það var Einar Sveinsson arkitekt sem teiknaði húsið, sem er 724,5 fermetrar að stærð, byggt árið 1946.
Fasteignamat hússins fyrir næsta ár er rúmar 290 milljónir króna.
Heimild: Mbl.is