Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir í Suðurnesjabæ. Verkið felst í byggingu sjóvarna á fjórum stöðum í Suðurnesjabæ; við Garðshöfn og við Garðveg, Nýlendu og Nesar í Sandgerði.
Helstu magntölur:
- Útlögn grjóts og sprends kjarna um 10.200 m3
- Endurröðun grjóts um 900 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 1. september 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 16. september 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.