Til stendur að malbika Biskupstungnabraut á milli gatnamóta við Hringveg og Þingvallavegar frá klukkan 4 aðfaranótt miðvikudagsins 26. ágúst til klukkan 1 aðfaranótt fimmtudagsins 27. ágúst.
Biskupstungnabraut verður lokuð og merkt verður hjáleið um Skálholtsveg og Skeiða- og Hrunamannaveg.
Vegfarendum frá höfuðborgarsvæðinu sem eiga leið í Grímsnes og Grafning er bent á hjáleið um Þingvelli.
Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp samkvæmt lokunaráætlun.
Heimild: Mbl.is