Um 450 metra kafli á varnargörðum við Skarðseyri verður lagfærður og hækkaður um einn metra.
Auk framkvæmda við varnargarðinn sjálfan verður sandfangari lengdur um 30 metra. Feykir greindi frá framkvæmdunum fyrr í dag.
Varnargarðarnir eru tveir, annars vegar á norðanverðri Skarðseyrinni, hins vegar við Strandveginn.
Það flæddi þrisvar sinnum yfir varnargarðana í vetur og fylgdi því mikið rask og tjón fyrir atvinnurekendur á svæðinu.
Dagur Þór Baldvinsson, hafnarstjóri, var ánægður þegar fréttastofa náði tali af honum í dag.
„Þetta hefur þá þýðingu að fyrirtækin geta verið róleg þó það sé vont veður og geta haldið uppi starfsemi á svæðinu,“ segir hann.
Framkvæmdin mun því breyta miklu í vetur en áætluð verklok eru um áramót og kostnaður metinn á um 50 milljónir.
Þá segir hann að lenging sandfangarans breyti miklu og það sé framkvæmd sem átti að vera búið að fara í fyrir löngu.
Heimild: Ruv.is