Verkið felur í sér uppbyggingu og frágang á göngu- og hjólastíg við Súluhöfða í Mosfellsbæ, en búið er að fjölga lóðum og bæta við einni götu norðvestan við núverandi byggð.
Leggja skal nýjan stíg sem skal aðlaga að núverandi stígum sem tengjast framkvæmdasvæðinu og landmótun meðfram nýjum stígum. Frágangur miðast við jarðvinnu, mulning undir malbik, grassáningu og fleira.
Helstu magntölur:
Aðstaða og rekstur vinnusvæðis
Uppúrtekt og tilflutningur á jarðvegi 2.700 m³
Fylling undir stíga og yfirborðsfrágang 2.100 m³
Mulningur 3.000 m
Grjóthleðsur 40 m
Grassáning 4.200 m²
Grasþakning 800 m²
Gróðurmold og gróðursandur 250 m³
Verkinu skal að fullu lokið 15. nóvember 2020.
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan 11:00 á þriðjudeginum 11. ágúst 2020.
Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en fimmtudaginn 27. ágúst 2020 kl.11:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.