Áfram er unnið að því að hreinsa til á veginum um Þvottárskriður eftir aurskriðu sem féll á hann í gær og lokaði fyrir umferð.
Ekki leið langur tími í gær frá því að tilkynnt var um aurskriðuna og tókst að opna fyrir umferð á ný.
Áfram voru þó ummerki eftir skriðuna og héldu verktakar hreinsunarstarfinu áfram í dag.
Skriðurnar vekja jafnan athygli þeirra sem ferðast um svæðið og var þar engin breyting á í morgun, þegar blaðamaður mbl.is átti leið hjá, en fjöldi bíla stoppaði bæði til að virða skriðurnar fyrir sér sem og hreinsunarstarfið.
Heimild: Mbl.is