Verktakinn sem er að leggja nýjan Þeistareykjaveg spáir því að hann verði vinsælasta ferðamannaleiðin milli Húsavíkur og Mývatns og telur að hann ætti að verða hluti af Demantshringnum, sem Norðlendingar eru að markaðssetja. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.
Kísilvegurinn um Hólasand er nýlega búinn að fá slitlag meira en hálfri öld eftir að hann var lagður í tengslum við smíði Kísiliðjunnar við Mývatn. Nýi Þeistareykjavegurinn mun tengjast Kísilveginum á Hólasandi um tíu kílómetra frá Mývatni.
Starfsmenn verktakans Árna Helgasonar ehf. frá Ólafsfirði byrjuðu í fyrrasumar að byggja upp síðari áfanga vegarins, sautján kílómetra milli Þeistareykja og Hólasands, gerðu svo hlé í vetur, en mættu í sumar aftur þegar snjóa leysti.
„Við gátum ekki byrjað hér fyrr en í júlí. Það var allt á kafi í snjó hérna. En það gekk fint – og gengur fínt,“ segir Helgi Reynir Árnason, sonur eigandans, en hann er verkstjóri við Þeistareykjaveg.
Landsvirkjun kostar vegagerðina til að koma á heilsártengingu milli Þeistareykja og Kröflu í því skyni að auðvelda samrekstur jarðgufuvirkjana sinna.
„Við klárum í haust. Þá á eftir að bjóða út klæðningarnar á þetta. Það á að gera á næsta ári. Þannig að þá verður á næsta ári vonandi kominn klæddur vegur alveg til Húsavíkur.“
Með Þeistareykjavegi verður til þriðja malbikaða leiðin milli Húsavíkur og Mývatns, til viðbótar við Kísilveg og veginn um Aðaldal og Reykjadal. En hver þeirra verður vinsælust af ferðamönnum í framtíðinni?
„Það er náttúrlega engin spurning. Þetta verður náttúrlega aðalvegurinn úr Mývatnssveit og niður að Húsavík þegar hann verður tilbúinn. Þetta er langflottasti vegurinn. Þetta verður geggjaður vegur hérna, sko. Það er engin spurning,“ svarar Helgi Reynir.
Með tilkomu nýs Dettisfossvegar í haust er Norðlendingum ekkert að vanbúnaði að markaðssetja Demantshringinn sem tengir margar af frægustu náttúruperlum landsins.
En ætti nýi Þeistareykjavegurinn að verða hluti Demantshringsins?
„Ég held að hann verði það, alveg pottþétt. Ef menn ætla að keyra Mývatnssveit og Dettifoss – og Þeistareykir eru náttúrlega mjög fallegur staður, sko.“
Heimild: Visir.is