F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar og Veitna ohf. er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Endurnýjun gönguleiða 2020 – Útboð 1, útboð nr. 14953
Um er að ræða endurnýjun á steyptum og hellulögðum gönguleiðum og felst verkið í upprifi á yfirborði núverandi gönguleiða, jarðvegsskiptum þar sem þörf er á ásamt niðurtekt og endurnýjun á ljósastaurum og ljósastrengjum, hitaveitu og raflögnum.
Helstu magntölur útboðsins eru:
- Jarðvegsskipti : 1203 m3
- Niðurtekt/uppsetning ljósastólpa : 63 stk.
- Jarðstrengir og jarðvírar : 2484 m
- Hitaveitulagnir : 45 m
- Steyptar stéttar : 2246 m2
- Hellulagðar stéttar : 125 m2
- Malbikun : 132 m2
- Vélsteyptur kantsteinn : 79 m
Lok framkvæmdatíma: 15. júní 2021.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00, þann 28. júlí 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður