Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu Vestfjarðavegar (60) á um 10 km kafla.
Verkið skiptist í tvo kafla. Annars vegar um 5,7 km langan kafla við Þverdalsá (vegkafli 60-35) og hins vegar um 4,3 km langan kafla fyrir Meðalnes (vegkafli 60-38).
Verkhluti 8.1 Vestfjarðavegur (60-35) við Þverdalsá
Í þessum verklhuta er um að ræða vegagerð á Vestfjarðavegi (60-35) við Þverdalsá.
Helstu magntölur eru:
–Bergskeringar í vegstæði 195.000 m3
–Fylling úr skeringum 246.000 m3
–Fláafleygar úr skeringum 36.200 m3
-Ræsalögn 470 m
-Styrktarlag 24.600 m3
-Burðarlag 10.500 m3
–Klæðing 45.600 m2
–Bitavegrið 2.000 m
Verkhluti 8.2 Vestfjarðavegur (60-38) fyrir Meðalnes
Í þessum verkhluta er um að ræða vegagerð á Vestfjarðarvegi (60-38) fyrir Meðalnes.
Helstu magntölur eru:
–Bergskeringar í vegstæði 120.500 m3
–Fylling úr skeringum 141.000 m3
–Fláafleygar úr skeringum 3.700 m3
-Grjótvörn 4.800 m3
-Ræsalögn 370 m
-Styrktarlag 19.100 m3
-Burðarlag 8.250 m3
–Klæðing 35.800 m2
–Bitavegrið 3.600 m
Útlögn efra lags klæðingar skal lokið 31. ágúst 2021. Verkinu skal að fullu lokið 30. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 20. júlí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. ágúst 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.