Úr fundargerð Bæjarráðs Garðabæjar 21.07.2020
6. 1811027 – Drög að samkomulagi um úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á miðsvæði Álftaness. |
Lagt fram og kynnt samkomulag Miðengis ehf. og Garðabæjar við Húsbygg ehf. um sölu byggingarréttar þriggja íbúðaþyrpinga við Breiðumýri á Álftanesi þar sem gert er ráð fyrir að byggðar verði 252 íbúðir.
Í samkomulaginu kemur fram að Garðabær mun kaupa 500 fermetra húsnæði í Lambamýri sem verður nýtt fyrir félags- og tómstundastarf eldri borgara. Húsnæðið verður afhent Garðabæ tilbúið til innréttingar í september 2021. Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans að öllum skilyrðum uppfylltum. |
Heimild: Garðabær.is