Home Fréttir Í fréttum Sprenging í framboði á leiguhúsnæði á Akureyri

Sprenging í framboði á leiguhúsnæði á Akureyri

92
0
Akureyrarbær

Mikil aukning er í auglýstum leiguíbúðum á Akureyri í gegnum netið á milli ára. Á vefsíðunni www.airbnb.com má finna upplýsingar um leiguhúsnæði víðsvegar um heim. Í fyrra voru um það bil 80 íbúðir skráðar á Akureyri og nágrenni á vefsíðunni en í dag eru skráðar um 180 íbúðir. Sædís Gunnarsdóttir, verkefnastjóri fasteignaskráningar á Akureyri, segir að eitthvað sé um að fólk leigi út íbúðir án þess að hafa réttindi til þess.

<>

María Helena Tryggvadóttir, verkefnisstjóri ferðamála hjá Akureyrarstofu, segir að með netauglýsingum sé auðveldara að koma þjónustu eins og gistirými á framfæri án þess að hafa  tilskilin leyfi og einnig sé hægt að bera bera saman gististaði og verð.

Heimild: Vikudagur.is