Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endur- og nýlögn Strandavegar (643) frá Drangsnesvegi utan Hálsgötu á Selströnd í Steingrímsfirði að heimreið að Svanshóli í Bjarnarfirði. Lengd útboðskaflans er 7,35 km.
Helstu magntölur eru:
Skering 150.000 m3
– þar af í berg 60.000 m3
Fylling, farg meðtalið 163.000 m3
Neðra burðarlag 29.200 m3
Efra burðarlag 11.900 m3
Tvöföld klæðing 52.700 m2
Frágangur á fláum 161.000 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2017.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 27. júlí 2015. Verð útboðsgagna er 6.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. ágúst 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.