Home Fréttir Í fréttum Vara við á­hrifum á um­hverfi vegna nýs vegar um Dynjandis­heiði

Vara við á­hrifum á um­hverfi vegna nýs vegar um Dynjandis­heiði

271
0
Til stendur að leggja heilsársveg um Dynjandisheiði. Mynd: VÍSIR/HAFSTEINN

Skipulagsstofnun mælir ekki með því að brú verði reist yfir Vatnsfjörð en til stendur að hefja þar vegaframkvæmdir sem hluta af því að leggja heilsársveg um Dynjandisheiði.

<>

Jákvæð áhrif þess að stytta Vestfjarðarveg með þverun Vatnsfjarðar væru óveruleg þegar horft er til þeirra samgöngubótar sem framkvæmdin í heild sinni felur í sér annars vegar og gildis þess svæðis sem framkvæmdin mun hafa á.

Skipulagsstofnun gaf í dag út álit um mat á umhverfisáhrifum Vestfjarðarvegar um Dynjandisheiði og Bíldudalsveg frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðarvegi á Dynjandisheiði.

Í matsskýrslu Vegagerðarinnar er framkvæmdunum skipt í þrjá áfanga og lagt mat á umhverfisáhrif þrettán valkosta um veglínur á þessum þremur áföngum.

Skipulagsstofnun telur ljóst að heilsársvegur um Dynjandisheiði komi til með að fela í sér verulegar samgöngubætur fyrir fjölda fólks á stóru svæði og er jafnframt sammála Vegagerðinni um að áhrif áfanganna á samfélag, landnotkun og mannvirki séu talsvert jákvæð, óháð leiðarvali.

Þá sé, með tilliti til umhverfis- og verndunarsjónarmiða, eini valkosturinn því að fylgja núverandi veginn. Sá kafli Vestfjarðarvegar sem liggur um friðlandið í Vatnsfirði hafi þá sérstöðu að vera þegar með bundnu slitlagi ásamt því að vera ekki sérstakur farartálmi að vetri.

Jákvæð áhrif hvað varði bættar samgöngur á þessum vegarkafla felist því fyrst og fremst í betri vegi upp á Dynjandisheiði.

Fram kemur í álitinu að önnur helstu umhverfisáhrif framkvæmdarinnar felist í neikvæðum áhrifum á friðlýst svæði Dynjanda en á þeim vegarkafla eru lagðar fram tvær tillögur um veglínur til samanburðar sem að mati Skipulagsstofnunar hafa báðar talsvert neikvæð áhrif á verndarsvæðið.

Skipulagsstofnun tekur því ekki afstöðu til þess hvor kosturinn eigi að verða fyrir valinu en bendir á að Umhverfisstofnun telur annan valkostanna ekki samræmast verndarskilmálum friðlýsts svæðis við Dynjanda.

Þá muni framkvæmdirnar jafnframt valda umtalsverðu raski á náttúrulegri strandlengju þriggja innfjarða Suðurfjarða Arnarfjarðar sem mun hafa áhrif á lífríki fjöru þar sem finna má vistgerðir með hátt verndargildi og mikilvæg fæðuöflunarsvæði fugla.

Vegagerðin hefur lagt fram fjölda mótvægisaðgerða vegna áhrifa á umhverfisþætti sem fjallað er um í umhverfismati hennar. Skipulagsstofnun metur það þó svo að þær þurfi að útfæra nánar og skilgreina með skýrari hætti ábyrgð með framkvæmd og eftirfylgni hennar.

Heimild: Visir.is