Ísafjarðarhöfn óskar eftir tilboðum í steypta þekju á Suðureyri.
Helstu magntölur:
- Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypta þekju.
- Slá upp mótum, járnabinda og steypa þekju, alls um 808 m2.
- Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn, alls um 211 m.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. október 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 6. júlí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júlí 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.