Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Endurbætur á Hringvegi (1) um Heiðarenda, Jökulsá-Heiðarsel

Opnun útboðs: Endurbætur á Hringvegi (1) um Heiðarenda, Jökulsá-Heiðarsel

198
0

21.7.2015

<>

Tilboð opnuð 21.júlí 2015. Styrking og endurbætur á 6,5 km kafla á Hringvegi (1). Kaflinn er frá Jökulsá á Dal að Heiðarseli. Í útboðinu felst m.a. breikkun vegar, lenging ræsa, þurrfræsing og lagning tvöfaldrar klæðingar.

Helstu magntölur eru:

Fylling 10.000 m3
Skering 1.000 m3
Fláafleygar 15.000 m3
Burðarlag 0/22 mm (þ.m.t. efnisvinnsla steinefna) 3.000 m3
Styrktarlag 10.000 m3
Þurrfræsing 44.000 m2
Tvöföld klæðing  (þ.m.t. efnisvinnsla steinefna) 50.000 m2
Frágangur fláa 100.000 m2

Verkið er áfangaskipt og er gert ráð fyrir að breikka veginn að mestu á árinu 2015 og ljúka breikkun vegar, fræsa burðarlag og klæðingu ásamt öðrum verkþáttum að fullu fyrir 1. september 2016.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Héraðsverk ehf., Egilsstöðum 150.000.000 108,8 10.120
Þ.S. Verktaka ehf., Egilsstöðum 139.879.614 101,5 0
Áætlaður verktakakostnaður 137.874.000 100,0 -2.006