Home Fréttir Í fréttum 03.09.2020 Alþingi – nýbygging – Uppsteypa og fullnaðarfrágangur

03.09.2020 Alþingi – nýbygging – Uppsteypa og fullnaðarfrágangur

510
0
Mynd: studio granda arkitekta

FSR, fyrir hönd Alþingis, kynnir opið útboð vegna framkvæmda við jarðvinnu, uppsteypu og fullnaðar- og lóðarfrágangs nýs skrifstofu- og þjónustuhúss Alþingis.

<>

Hönnun þess byggir á samkeppnistillögu Studio Granda sem hlaut 1. verðlaun í samkeppni um hönnun hússins. Aðilar hönnunarteymis eru Studio Granda og EFLA.

Byggingin verður skrifstofu og þjónustuhús Alþingis og mun standa við horn Tjarnargötu og Vonarstræti.

Fyrirhuguð nýbygging (grunnhús á 4 hæðum ásamt 5. hæð og kjallara) er um 6.362 m2 að stærð og þar af er bílakjallari um 1.300 m2.

Útboðsgögn verða aðgengileg í rafrænu útboðskerfi Ríkiskaupa TendSign frá 1. júlí 2020.

Tilboði ásamt fylgiblöðum skal skila rafrænt inn á TendSign útboðsvef Ríkiskaupa eigi síðar en 03. sept 2020, fyrir klukkan 12.00.

Allar nánari upplýsingar er að finna í viðhengjum inn á svæði verkefnisins í TendSign sem eru útboðs- samningsskilmálar og fylgigögn.

Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur.

Loading..