F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Seljakot – Viðbyggingar, Alútboð nr. 14910
Við leikskólann Seljakot á að byggja viðbyggingar austan og norðan við núverandi leikskóla. Viðbyggingar skulu vera byggðar úr timbri á steyptum grunni og falla vel að umhverfi sínu.
Væntanlegur verktaki skal fullhanna húsið í samræmi við íslensk lög og byggingareglugerð. Sjá nánar leiðbeiningablöð Mannvirkjastofnunar.
Aðkoma að byggingasvæðinu er um gróið svæði og er farið fram á að rask við gerð aðkomu sé lágmarkað sem frekast er unnt.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 9:00, þann 19. júní 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 15. júlí 2020.