F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Kirkjusandur – Yfirborðsfrágangur 2020, útboð nr. 14906
Um er að ræða vinnu við yfirborðsfrágang á hluta Hallgerðargötu ásamt hluta af götum 3, 4 og 5. Malbika skal götur og stíga, helluleggja stéttar og ganga frá gróðurbeðum.
Um er að ræða:
- Jöfnun á núverandi yfirborði
- Frágangur burðarlags og mulnings undir malbik í götum, stéttum og göngu- og hjólastíga.
- Upphækkun niðurfalla
- Uppsetningu götuljósastólpa
- Malbikun gatna og göngu- og hjólastíga
- Gerð kantsteina ásamt því að helluleggja gangstéttar og opin svæði
- Gerð gróðurbeða og gróðursetning
Helstu magntölur eru:
- Fyllingar: 1.500 m3
- Burðarlag: 1.300 m2
- Mulningur: 222 m2
- Kantsteinar: 223 m
- Hellulagnir: 295 m2
- Malbik: 1.500 m2
- Uppsetning ljósastólpa: 5 stk.
- Gróðurbeð: 48 m3
- Gróðursetningar: 88 stk
Lok framkvæmdatíma: 1. nóvember 2020.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00, þann 23. júní 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 8. júlí 2020.