F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Mjódd, endurnýjun útisvæðis – Undirbúningur, útboð nr. 14918.
Helstu þættir:
Helluleggja þriðja og síðasta áfanga að torgum í Mjódd. Leggja þarf snjóbræðslu, upphækkuð gróðurbeð og gróðursetja í þau. Einnig er lýsing tekin í gegn á svæðinu, bekkjum og ruslatunnum verður bætt við.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00, þann 23. júní 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 6. júlí 2020.